05. desember 2003
SORPA hefur aukið eignarhluta sinn í Metan hf. og leysti einnig til sín hreinsistöðina í Álfsnesi. Frá 1. september 2003 hefur SORPAþví séð um hreinsun á gasi til notkunar á ökutæki. Metan hf. mun hér eftir einbeita sér að því að auka hlut metans sem ökutækjaeldsneytis jafnframt því að þróa og stækka aðra markaði fyrir metan.
SORPA eykur eignarhlut sinn í Metan hf.
SORPA hefur aukið eignarhluta sinn í Metan hf. og leysti einnig til sín hreinsistöðina í Álfsnesi. Frá 1. september 2003 hefur SORPAþví séð um hreinsun á gasi til notkunar á ökutæki. Metan hf. mun hér eftir einbeita sér að því að auka hlut metans sem ökutækjaeldsneytis jafnframt því að þróa og stækka aðra markaði fyrir metan.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) ákvað síðsumars að gerast hluthafi í Metan hf. Er það mikið fagnaðarefni fyrir aðra hluthafa fyrirtækisins að OR sýni þessu merka umhverfismáli stuðning með svo afgerandi og beinum hætti, en OR hefur nú í rúmt ár framleitt raforku úr metangasi í Álfsnesi. Hluthafar í dag eru því orðnir 4, þ.e.a.s. SORPA, OR, Olíufélagið ehf. og Nýsköpunarsjóður hf.
Hluthafafundur var haldin þann 19. nóvember þar sem var kosin ný stjórn fyrir félagið. Í nýrri stjórn sitja Jón Atli Benediktsson og Erling Ásgeirsson fyrir SORPU, Þorleifur Finnsson fyrir OR, Heimir Sigurðsson fyrir Olíufélagið ehf og Hermann Ottósson fyrir Nýsköpunarsjóð hf. Jón Atli Benediksson er stjórnarformaður og Heimir Sigurðsson varaformaður.
Heimasíða Metan hf.