08. desember 2003
Vönduð flokkun og talning skilagjaldsskyldra umbúða er nauðsynleg!
Forsenda þess að hægt sé að endurvinna skilagjaldsskyldar umbúðir er að þeim sé skilað vel flokkuðum. Við leggjum mikla áherslu á það við viðskiptavini okkar að flokka vel eftir umbúðategundum (dósir, plastflöskur og glerflöskur) og framvísa nákvæmri talningu á hverri umbúðategund fyrir sig þegar umbúðum er skilað á endurvinnslustöðvar.
Nauðsynlegt er að fylgjast stöðugt með því að magn umbúða sem skilað er sé í samræmi við uppgefið magn og undanfarið hefur staðið yfir átak á því sviði á endurvinnslustöðvum SORPU og hjá Endurvinnslunni hf. Allar skilagjaldsskyldar umbúðir eru taldar af starfsmönnum og ef misræmi er á milli talningar viðskiptavinar og starfsmanns er greitt fyrir umbúðirnar samkvæmt talningu starfsmannsins. Viðskiptavinir okkar hafa í sumum tilfellum þurft að bíða eftir afgreiðslu og þökkum við þeim fyrir biðlund og þolinmæði vegna þessa.
Viðskiptavinir geta ávallt átt von á því að talið sé frá þeim en það hefur verið gert frá því að móttaka skilagjaldsskyldra umbúða hófst. Átak eins og nú hefur verið í gangi mun einnig verða endurtekið með óreglulegu millibili í framtíðinni. Greitt er samkvæmt fjölda eininga, 9 krónur fyrir eininguna.
Nánar um skilagjaldsskyldar umbúðir