14. desember 2003
Hefð er að myndast fyrir útgáfu almanaks SORPU en það hefur verið gefið út frá árinu 2002. Þá voru það grunnskólanemendur sem komið höfðu í fræðsluferðir á árinu 2001 sem sáu um myndskreytingu. Leikskólanemendur þrettán leikskóla myndskreyttu svo almanak ársins 2003 en að þessu sinni eru það einstaklingar sem sækja þjónustu til Hæfingarstöðvarinnar, Fannborg 6 (Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi) sem unnu myndverkin.
Almanak 2004 komið út!

Þema verkanna var „árstíðirnar og endurnýting“. Almanakið verður á næstu dögum sent til allra skóla og leikskóla á höfuðborgarsvæðinu og er gjöf SORPU til bekkjardeilda skólanna. Þar er að finna ýmsar upplýsingar varðandi flokkun úrgangs og er það von okkar að almanakið verði bæði til gagns og gamans og nýtist jafnvel í umhverfisfræðslu innan skólanna. Mikilvægur þáttur í kynningarstarfsemi SORPU er móttaka skólahópa á ýmsum aldri þar sem nemendur fá tækifæri til þess að kynnast starfsemi fyrirtækisins með eigin augum. Þar er lögð áhersla á að kynna umhverfissjónarmið og þá möguleika sem einstaklingurinn hefur til þess að leggja sitt af mörkum.
Viðskiptavinir geta nálgast almanakið á endurvinnslustöðvum SORPU, í Góða hirðinum og á vigt móttökustöðvar svo lengi sem birgðir endast