Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:30 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 5,9 m/s
Hitastig: 5,94 °C

 

18. desember 2003

SORPA styrkir Hvammshús

Frá vinstri: Stefán Gunnarsson, kennari, Pétur Geir, Aron, Bjarki og Tómas nemendur, Ögmundur Einarsson, framkvæmdarstjóri SORPU og Birgir Svan Símonarson, forstöðumaður Hvammshúss.
Engin jólakort voru send til starfsmanna eða viðskiptavina í ár. Ákveðið var að þess í stað yrði andvirði jólakortanna varið í styrk til verðugs málefnis. Fimmtudaginn 18. desember afhenti Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri SORPU, Pétri Geir Grétarssyni styrkinn, sem tók við honum fyrir hönd Hvammshúss. Hvammshús í Kópavogi er sjálfstætt sérkennsluúrræði fyrir nemendur á aldrinum 14-16 ára sem farið hafa halloka í almenna skólakerfinu.

Í skólastefnu Hvammshúss kemur fram að meginmarkið þess sé ,,að allir geti látið sér líða vel í skólanum og hlakki til hvers dags” og ,,að eyða námstengdum kvíða og vanlíðan”. Önnur markmið eru að gera nemendum kleift að útskrifast formlega með grunnskólapróf, að vekja áhuga þeirra á þátttöku í samfélaginu og að stefna frá vandamálum til lausna. Mikið er lagt upp úr verklegum þáttum t.a.m. viðgerðum muna og þrifum. Styrkurinn verður nýttur í ferðasjóð Hvammshúss en farið er í vettvangsferðir og lengri ferðir á hverju ári.

Til baka