Endurnýtt húsgögn hjálpa öðrum til sjálfshjálpar
Fjölsmiðjan, Ásgarður og Foreldrahúsið hljóta styrk frá Góða hirðinum, nytjamarkaði SORPU og líknarfélaga.
![]()
Trausti Veigar Hilmarsson, Heimir Þór Tryggvason, Elísa Wiium, Þorbjörn Jensson, Sigríður B. Einarsdóttir, Ásta Þórisdóttir, Sólrún Trausta Auðunsdóttir og Ögmundur Einarsson.
Föstudaginn 19. desember var ágóði af sölu húsbúnaðar í Góða hirðinum afhentur sem styrkur til þriggja samtaka sem hafa það að markmiði að hjálpa öðrum til sjálfshjálpar. Samtökin þrjú eru Fjölsmiðjan, Ásgarður - handverkstæði og Foreldrahúsið.
Góði hirðirinn er rekinn af SORPU í samvinnu við fjögur líknarfélög, Rauða kross Íslands, Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstofnun kirkjunnar og Hjálpræðisherinn. Endurvinnslustöðvar SORPU sjá um að safna húsbúnaði sem er seldur í gegnum Góða hirðinn, en ágóðinn af sölunni fer allur til líknarmála. Með þessu fá munir sem hafa óskert notagildi, nýtt hlutverk hjá nýjum eigendum. Jafnframt njóta líknarfélögin og skjólstæðingar þeirra góðs af ágóðanum og fá afslátt í versluninni. Hátt í 500 tonn af húsbúnaði fóru í endurnotkun í gegnum Góða hirðinn á árinu og gerðu það mögulegt að veita veglegan styrk, fimmta árið í röð.
Fjölsmiðjan er sjálfseignarstofnun, sem er ætlað að starfrækja verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára, sem hætt hefur námi og ekki fótað sig á vinnumarkaði. Styrknum verður varið í menningarleg verkefni, myndlist, leiklist o.fl. Ásta Þórisdóttir, fyrrv. verslunarstjóri Góða hirðisins, afhenti Þorbirni Jenssyni styrkinn sem veitti honum viðtöku fyrir hönd Fjölsmiðjunnar.
Ásgarður er handverkstæði sem á starfa þroskaheftir einstaklingar. Í Ásgarði eru framleidd leikföng sem eru seld á almennum markaði. Lögð er áhersla á að starfsmennirnir taki þátt í öllu framleiðsluferlinu, þ.e. hönnun, smíði, markaðssetningu og sölu. Styrkurinn verður notaður til þess að setja upp eldsmiðju og rennibekk. Það var Trausti Veigar Hilmarsson, starfsmaður Góða hirðisins, sem afhenti Heimi Þór Tryggvasyni aðstoðarforstöðumanni Ásgarðs, styrkinn.
Foreldrahúsið vinnur annars vegar að forvörnum og hins vegar að fjölskylduráðgjöf þar sem börnum í neyslu og foreldrum þeirra er veitt aðstoð. Styrkurinn verður nýttur til þess að þróa áfram stuðningsmeðferð unglinga og foreldra þeirra sem lokið hafa langtímameðferð. Sólrún Trausta Auðunsdóttir, verslunarstjóri Góða hirðisins, afhenti Elísu Wiium framkvæmdarstjóra Foreldrahúss – Vímulausrar æsku, styrkinn.












