Góði hirðirinn - styrkumsókn
Góði hirðirinn-aðalsíða
(17:10 25/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: SV 6,3 m/s
Hitastig: 6,08 °C
17. mars 2004

Styrkur Góða hirðisins vel nýttur

Tourette-samtökin stóðu að þýðingu og útgáfu bókarinnar "Ráð handa reiðum krökkum" hér á landi. Góði hirðirinn, nytjamarkaður SORPU og líknarfélaga, styrkti samtökin haustið 2002 um 450.000.- kr. Var sá styrkur notaður til að þýða og gefa út bókina á Íslandi og gerði samtökunum kleift að selja bókina á vægu verði. Fær Góði hirðirinn bestu þakkir fyrir styrkinn.

Ráð handa reiðum krökkum - Reiðistjórnunarbók, sem er íslensk þýðing bókarinnar Hot Stuff To Help Kids Chill Out; The Anger Management Book, eftir dr. Jerry Wilde, kom út á Íslandi í mars 2004. Þetta er bók sem ætluð er börnum og unglingum, en er í raun góð lesning fyrir hvern sem er, ekki síst einstaklinga með Tourette sem oft glíma við skerta skapstjórnun og reiðiköst (e. Tourette storm).

Ráð handa reiðum krökkum er sögð vera áhrifarík bók gerð með því markmiði að hvetja nútímakrakka til að ná tökum á reiði sinni áður en reiðin nær tökum á þeim!

Á baksíðu bókarinnar segir að hún sé einstök nálgun á “reiðivanda” nútíma barna og unglinga, að barna- og unglingasálfræðingurinn dr. Jerry Wilde tali hér beint til krakka á máli sem höfðar til þeirra. Einnig segir þar að þetta sé mjög hagnýt og auðskiljanleg handbók, sem sýni krökkum fram á hvernig þeirra eigin reiðitilfinningar verða til og hvernig má ná tökum á þeim. Fólki er einnig bent á að skoða umsagnir um bókina á bókaversluninni amazon.com á vefnum.

Við hvetjum þá sem koma að uppeldi og kennslu barna og unglinga til að gefa þeim eintak af þessari nytsamlegu bók. Verð hennar er aðeins 1.000.- kr. hjá Tourette-samtökunum og sendingarkostnaður bætist síðan við hjá þeim sem vilja fá bókina senda.

Þeir sem vilja fá bókina senda geta pantað hana með því að senda okkur tölvupóst á netfang samtakanna tourette@tourette.is með nafni, heimilisfangi og póstnúmeri.

Til baka