Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:30 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 5,9 m/s
Hitastig: 5,94 °C

 

30. desember 2010

Nýtt skráningarkerfi tekið í notkun

Þann 1. janúar nk. mun SORPA taka upp nýtt skráningarkerfi við móttöku úrgangs í móttöku- og flokkunarstöð Gufunesi og urðunarstað Álfsnesi.  Einnig tekur þetta kerfi til gjaldskylds úrgangs sem tekið er við á endurvinnslustöðvum. Upptaka kerfisins er hluti af viðbrögðum SORPU við auknum kröfum Evrópusambandsins um rekjanleika úrgangs og í samhljómi við væntanlega vottun á gæðastjórnunarkerfi fyrirtækisins. 

Ýmis nýbreytni fylgir skráningarkerfinu og má þar helst nefna að úrgangshafi þarf að gefa upp póstnúmer þess hverfis sem úrgangurinn á uppruna sinn í ef úrgangurinn er á leið í urðun, að hluta eða í heild.  Samhliða bættri skráningu er ætlunin að skerpa á eftirfylgni við móttöku- og flokkunarreglur.  Með aukinni sjálfvirkni við skráningu er stefnt að betri þjónustu við viðskiptavini eftir stutt innleiðingartímabil.

Engin breyting á gjaldskrám umfram nauðsynlegar vísitöluhækkanir mun eiga sér stað samhliða upptöku endurskoðaðra flokkunar- og móttökureglna.  Gjaldskrár SORPU eru á heimasíðu, sorpa.is, eins og verið hefur.  Benda má á þá nýbreytni að fyrirtækinu er heimilt samkvæmt stjórnarsamþykkt SORPU bs að leggja á álagsgjald ef úrgangur og/eða afhending er ekki í samræmi við móttökuskilyrði.

Skoða má nýju gjaldskrána sem inniheldur samanburð gamalla og nýrra vörunúmer hér.

Til baka