Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:20 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 6 m/s
Hitastig: 6,11 °C

 

17. desember 2010

Gjöf sem gefur

SORPA veitir 20 milljónir til góðgerðarmála, alls 43 milljónir á árinu 2010.

Um árabil hafa íbúar höfuðborgarsvæðisins gefið notan húsbúnað í nytjagáma Góða hirðisins á endurvinnslustöðvunum. Í dag föstudaginn 17. desember veitti SORPA styrk af ágóða sölu þessara hluta og var alls veittur 20 milljón króna styrkur til 13 aðila. Þeir aðilar sem hlutu styrkinn voru; Hjálparstarf kirkjunnar til stuðnings við mæður með litla skólagöngu, til tómstunda barna og í neyðaraðstoð fyrir jólin 2010; Rauði krossinn fyrir verkefnið Félagsvinir atvinnuleitenda, í verkefnið neyðarsíminn 1717 og í neyðaraðstoð; Bandalag kvenna fyrir starfsmenntasjóð; Hringsjá, fyrir tæki til kennslu og aðbúnað nemenda; Umhyggja fyrir aðstoð við fjölskyldur langveikra barna þar sem foreldrara eru öryrkjar og einstæðar mæður; Stígamót fyrir aðstoð við að komast úr vændi og mansali og Hestamannafélagið Hörður, fyrir sérsmíðaða hnakka fyrir fatlaða.

Í ár hefur SORPA veitt 43 milljónir alls til góðgerðarmála en fyrri styrkveiting SORPU fór fram þann 22. september s.l. og einnig voru haldin tvö uppboð í Góða hirðinum sem gáfu af sér góða gjöf til Bjarkaráss.

Markmið SORPU er að auka meðvitund fólks um flokkun, endurvinnslu og stuðla að endurnýtingu úrgangs, minnka sóun og láta gott af sér leiða. Fyrirtækið leggur metnað í að styðja íslenskt samfélag með fjölbreyttum hætti. Gott samstarf starfsmanna endurvinnslustöðva SORPU og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gerir það að verkum að á hverju ári er hægt að styrkja góð málefni. Allt frá árinu 1999 hefur ágóði af sölu í Góða hirðinum runnið til góðgerðamála.

Í góða hirðinum má finna margan fjársjóðinn t.d. sófa, stóla, borð. skápa, þvottavélar, ísskápa og ýmis önnur raftæki. Einnig eru þar smærri hlutir á boðstólnum eins og bækur, plötur, leikföng, leirtau og ýmsir skrautmunir.

Til baka