Alls söfnuðust 687.000 krónur til styrktar Bjarkarás
Föstudaginn 10. desember sl. var haldið uppboð í Góði hirðirinn, nytjamarkaðar SORPU og líknarfélaga. Uppboðið gekk vel og alls safnaðist 301.000 krónur sem rennur óskipt til Bjarkarás. Bjarkarás er ein af stofnunum Áss styrktarfélags sem veitir fötluðu fólki dagþjónustu, hæfingu og vinnu. Uppboðshaldari var enginn annar en KK sem gaf vinnu sína til styrktar góðu málefni. Uppboðið er annað í röðinni á stuttum tíma til styrktar Bjarkarás og safnaðist alls 687.000 krónur sem rennur til þeirra óskiptur.
Í Bjarkarás kemur fjölbreyttur hópur fullorðins fólks með ólíkar þarfir. Margir þeirra eru í starfsþjálfun af einhverju tagi, aðrir fá aðstoð við að efla félagslega færni og enn aðrir nýta listræna hæfileika sína til sköpunar eða taka þátt í ræktun grænmetis í gróðurhúsinu. Um 50 manns koma í Bjarkarás í viku hverri.
Markmið Góða hirðisins er að stuðla að endurnotkun, minnka sóun og láta gott af sér leiða, því ágóði af sölu í Góða hirðinum rennur til ýmissa góðgerðarmála. Gott samstarfs starfsmanna endurvinnslustöðva og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gerir það að verkum að á hverju ári er hægt er að styrkja góð málefni.
Á endurvinnslustöðvum SORPU eru sérstakir nytjagámar þar sem fólk getur losað sig við gamla hluti sem enn hafa óskert notagildi. Þannig má forða hlutum með reynslu og sögu, frá endanlegri förgun og finna þeim nýtt hlutverk í nýju umhverfi hjá nýjum eigendum.
Í Góða hirðinum má finna allt milli himins og jarðar. T.d. sófa, stóla, borð, skápa, þvottavélar, ísskápa og ýmis önnur raftæki. Einnig eru þar smærri hlutir á boðstólnum eins og bækur, plötur, leikföng, leirtau og ýmsir skrautmunir.












