Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:20 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 6 m/s
Hitastig: 6,11 °C

 

07. desember 2010

Uppboð með KK í Góða hirðinum

Föstudaginn 10. desember kl 16:30 verður Góði hirðirinn, nytjamarkaðar SORPU og líknarfélaga, með uppboð í húsnæði Góða hirðisins að Fellsmúla 28. Uppboðshaldari er enginn annar en KK og rennur allur ágóði uppboðsins óskiptur til Bjarkaráss sem er ein af stofnunum Áss styrktarfélags sem veitir fötluðu fólki dagþjónustu, hæfingu og vinnu.

Í Bjarkarás kemur fjölbreyttur hópur fullorðins fólks með ólíkar þarfir. Margir þeirra eru í starfsþjálfun af einhverju tagi, aðrir fá aðstoð við að efla félagslega færni og enn aðrir nýta listræna hæfileika sína til sköpunar eða taka þátt í ræktun grænmetis í gróðurhúsinu. Um 50 manns koma í Bjarkarás í viku hverri.

Flottir, skemmtilegir og sjaldgæfir hlutir verða í boði.
Sjá sýnishorn af hlutum sem í boði verða hér.

Markmið Góða hirðisins er að stuðla að endurnotkun, minnka sóun og láta gott af sér leiða, því ágóði af sölu í Góða hirðinum rennur til ýmissa góðgerðarmála. Gott samstarfs starfsmanna endurvinnslustöðva og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gerir það að verkum að á hverju ári er hægt er að styrkja góð málefni.

Á endurvinnslustöðvum SORPU eru sérstakir nytjagámar þar sem fólk getur losað sig við gamla hluti sem enn hafa óskert notagildi. Þannig má forða hlutum með reynslu og sögu, frá endanlegri förgun og finna þeim nýtt hlutverk í nýju umhverfi hjá nýjum eigendum. Þessir hlutir fara svo í sölu hjá Góða hirðinum og stefnir i að rúmlega 800 tonn af munum fari í endurnotkun með þessum hætti þetta árið.

Í Góða hirðinum má finna allt milli himins og jarðar. T.d. sófa, stóla, borð, skápa, þvottavélar, ísskápa og ýmis önnur raftæki. Einnig eru þar smærri hlutir á boðstólnum eins og bækur, plötur, leikföng, leirtau og ýmsir skrautmunir.

Til baka