10. desember 2004
Í anda jólanna hefur sú hefð skapast hjá SORPU að í stað þess að senda viðskiptavinum fyrirtækisins jólakort er góðu málefni lagt lið með fjárstyrk.
Jólakortastyrkur SORPU rennur til Konukots
![]() |
| Á myndinni eru Ögmundur Einarsson, framkvæmdarstjóri SORPU og Ómar H. Kristmundsson, formaður Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands. |
Í anda jólanna hefur sú hefð skapast hjá SORPU að í stað þess að senda viðskiptavinum fyrirtækisins jólakort er góðu málefni lagt lið með fjárstyrk.
Í ár rennur styrkur að upphæð 200.000 kr. til Konukots, næturathvarfs fyrir heimilislausar konur. Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands rekur athvarfið en Félagsþjónustan í Reykjavík útvegaði deildinni húsnæði til rekstursins. Í Konukot geta heimilislausar konur leitað að kvöldlagi og fengið létta máltíð og næturgistingu. Einnig er þar hreinlætis- og þvottaaðstaða. Styrkurinn verður nýttur til kaupa á hreinlætis– og snyrtipökkum sem konunum verða afhentir við komur sínar í Konukot. Þann 10. desember, á 80 ára afmæli Rauða kross Íslands, var Konukot opnað að viðstöddum gestum.
Styrkur SORPU var afhentur við það tilefni.
Styrkur SORPU var afhentur við það tilefni.













