Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:10 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 9,5 m/s
Hitastig: 3,00 °C

17. desember 2004

Góði hirðirinn styrkir hjálparstarf

Á myndinni eru fulltrúar Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Mæðrastyrksnefndar ásamt verslunarstjórn Góða hirðisins og starfsfólki markaðarins.
Ágóði af sölu nytjahluta á árinu 2004 rennur til Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Mæðrastyrksnefndar.


Þann 17. desember fór fram styrkveiting Góða hirðisins, nytjamarkaðar SORPU og líknarfélaga. Að þessu sinni var styrkurinn veittur þeim fjórum félögum sem stóðu með SORPU bs. að stofnun nytjamarkaðarins í upphafi. Þessi félög eru Rauði krossinn, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn og Mæðrastyrksnefnd. Styrkurinn var 3 milljónir og skiptist jafnt á alla aðila þ.e. 750 þúsund krónur á félag. Styrkurinn var afhentur á skrifstofu SORPU að viðstöddum fulltrúum félaganna, starfsmönnum Góða hirðisins og verslunarstjórn.

Árið 1993 hófst samstarf SORPU við ofangreind líknarfélög um endurnýtingu húsgagna sem annars færu í urðun. SORPA sá um að safna hlutunum sem bárust á endurvinnslustöðvarnar en Rauði krossinn sá um að afhenda húsmuni til bágstaddra. Rekstrarformið breyttist árið 1995 þegar Rauði krossinn opnaði Nytjamarkaðinn að Bolholti 6. Árið 1997 tók svo SORPA alfarið við rekstri Nytjamarkaðarins og árið 1999 fékk hann nafnið Góði hirðirinn, nytjamarkaður SORPU og líknarfélaga. Er það orðaleikur um að hirða um hluti, fólk og náttúru.

Markmið Góða hirðisins er að endurnýta húsmuni og láta gott af sér leiða, því ágóðinn af sölunni rennur til góðgerðarmála. Þannig leggur almenningur góðgerðarmálum lið og um leið nýtast hlutir með reynslu og sögu hjá nýjum eigendum. Tekið er við húsmunum sem fólk vill gefa í Góða hirðinn á endurvinnslustöðvum SORPU.

Góði hirðirinn er staðsettur að Fellsmúla 28 og er opin frá kl. 12.00 – 18.00 alla virka daga.

Til baka