29. desember 2004
Sameiginleg svæðisáætlun um meðferð úrgangs
![]() |
| Undirritun. Frá vinstri: Þorvarður Hjaltas. Sorpstöð Suðurlands, Ögmundur Einarss. SORPU, Hrefna B. Jónsd. Sorpurðun Vesturlands og Guðjón Guðmundss. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja. |
Með gerð einnar heildaráætlunar fyrir svæði sem nær til um 80% þjóðarinnar og stærsta hluta atvinnulífs í landinu skapast skilyrði fyrir samræmdum vinnubrögðum og sameiginlegri lausn á því mikla viðfangsefni sem felst í réttri og öruggri meðhöndlun þess úrgangs sem til fellur í samfélaginu á hverjum tíma. Jafnframt leiðir það til þess að nýjar forsendur skapast til samræmingar og mögulegrar einföldunar á öllum reglum og fyrirmælum sem gilda um þennan mikilsverða málaflokk. Hvoru tveggja mun því leiða til betri og hagkvæmari niðurstöðu en ella yrði.
Gengið hefur verið frá samstarfssamningi um gerð sameiginlegrar svæðisáætlunar um meðferð úrgangs á starfssvæði fjögurra sorpsamlaga.
Samningsaðilar eru:
SORPA bs.
Sorpurðun Vesturlands hf.
Sorpstöð Suðurlands bs.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf.
Samningurinn er byggður á heimild í lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, en þar er kveðið á um skyldu sveitarfélaga til að gera svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í samræmi við ákvæði laganna og þau markmið sem sett eru fram í landsáætlun Umhverfisstofnunar.
Lögin heimila gerð sameiginlegra áætlana sem taka til fleiri sveitarfélaga og að gerð slíkra áætlana verði á hendi annarra, s.s. byggðarsamlaga sem sinna verkefnum á þessu sviði.
Svæðið sem hin sameiginlega áætlun nær til afmarkast af Gilsfjarðarbotni í norðri og Jökulsá á Sólheimasandi í austri. Á þessu svæði eru 43 sveitarfélög með alls um 232 þúsund íbúa, rétt tæplega 80% þjóðarinnar.
Í ljósi heildarhagsmuna, þróunar byggðar, búsetu og atvinnustarfsemi er talið rétt og eðlilegt að unnin verði ein sameiginleg svæðisáætlun er taki til allra sveitarfélaga á starfssvæði ofangreindra samningsaðila. Með því verði leitað að hagkvæmustu leiðum varðandi meðhöndlun úrgangs á öllu svæðinu í samræmi við ákvæði laga, þær skyldur sem sveitarfélögin þurfa að uppfylla og að teknu tilliti til þeirrar samfélagsþróunar sem átt hefur sér stað og fyrirsjáanleg er.
Sameiginleg svæðisáætlun mun gefa skýra mynd af núverandi stöðu í meðhöndlun og förgun úrgangs á þessu svæði, spá um líklega þróun fram til ársins 2020, mat á þörf fyrir aðgerðir til að mæta nýjum og vaxandi kröfum um breytta meðhöndlun úrgangs á þessu tímabili og tillögur um aðgerðir til að mæta þessum kröfum.
Stefnt er að því að fullmótuð áætlun liggi fyrir í maílok 2005 og að hún hafi hlotið staðfestingu sveitarstjórna í lok ágústmánaðar 2005.