SORPA gaf Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra sjö og hálfa milljón vegna vetrarstarfs Reykjadals
Á sunnudaginn 15. ágúst sl. afhenti SORPA Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra styrk upp á sjö og hálfa milljón króna vegna vetrarstarfs Reykjadals. Styrkurinn er ágóði af sölu í Góða hirðinum sem hefur ár hvert allt frá árinu 1999 runnið til góðgerðamála. Styrkveitingin fór fram á sumarlokahátíð í Reykjadal.
Í Reykjadal rekur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sumarbúðir og vetrardvöl fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 5 – 23 ára. Reykjadalur hefur verið starfræktur frá árinu 1963 og þjónustar um 300 börn og ungmenni árlega. Sumarbúðirnar í Reykjadal hafa það markmið að veita börnum og ungmennum sem þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að komast í sumarbúðir líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra.
Markmið SORPU er að auka meðvitund fólks um flokkun, endurvinnslu og stuðla að endurnýtingu úrgangs, minnka sóun og láta gott af sér leiða. Fyrirtækið leggur metnaði í að styðja íslenskt samfélag með fjölbreyttum hætti. Gott samstarf starfsmanna endurvinnslustöðva SORPU og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gerir það að verkum að á hverju ári er hægt er að styrkja góð málefni. Allt frá árinu 1999 hefur ágóði af sölu í Góða hirðinum runnið til góðgerðamála.
Í Góða hirðinum má finna allt milli himins og jarðar. T.d. sófa, stóla, borð, skápa, þvottavélar, ísskápa og ýmis önnur raftæki. Einnig eru þar smærri hlutir á boðstólnum eins og bækur, plötur, leikföng, leirtau og ýmsir skrautmunir.












