Vistvæn innkaup
Vistvæn innkaup er mikilvægur liður í verndun umhverfisins. Mikið magn matvæla enda í ruslinu ár hvert með tilheyrandi kostnaði fyrir bæði neytendur og samfélagið í heild sinni. Hægt er að rekja part þessa magns til rangra innkaupa og þar að leiðandi eru vistvæn innkaup partur af úrgangsstjórnun. Samkvæmt árlegri húsasorpsrannsókn SORPU voru matarleifar úr heimilisúrgangi tæpur fjórðungur af heildarmagni úrgangsins á síðasta ári.
Vistvæn innkaup er að velja þá vöru eða þjónustu sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna og ber sama eða lægri líftímakostnað samanborið við aðrar vörur og þjónustu sem uppfylla sömu þörf.“ www.vinn.is
Meðal mikilvægustu skrefa vistvænna innkaupa er að greina raunverulega þörf, einblína ekki á ákveðna vöru heldur á virkni hennar þ.e. hvaða þörf hún á að uppfylla. Þörfina má ef til vill uppfylla með breyttu vinnulagi, endurnýtingu, þjónustu eða öðrum valkosti. Vistvæn innkaup snúast ekki alltaf um að kaupa vistvænni vöru heldur geta þau snúist um að kaupa minna eða að fara aðrar leiðir. Á heimasíðunni www.vinn.is er að finna ýmsar fróðlegar upplýsingar tengdar vistvænum innkaupum.












