Tímamót í sögu metans á Íslandi - tíu ár frá fyrstu áfyllingu!
Sunnudaginn 6.júní sl. voru liðin tíu ár frá því að metani var fyrst dælt á bifreið hér á landi. Sama dag árið 2000 dældu starfsmenn SORPU í Álfsnesi metan eldsneyti, sem unnið var úr hauggasi í hreinsistöð SORPU í Álfsnesi, á nýjan VW Transporter Double Cap metan/bensínbíl SORPU. Í dagbók starfsmanns segir að allt hafi gengið að óskum og gangurinn í bílnum hafi verið óaðfinnanlegur. Allar götur síðan hefur SORPA unnið metan eldsneyti úr hauggasi í Álfsnesi og hefur ökutækjum sem ganga fyrir metan eldsneyti fjölgað umtalsvert á þessum tíu árum.
Nú er svo komið að á annaðhundrað metanbílar, stórir og smáir, aka um götur Reykjavíkur daglega. Áður voru það aðalega bílar í eigu lögaðila og stofnanna ríkis og bæja, en einstaklingar eru í auknu mæli að uppgötva þann mikla ávinning sem felst í því að eiga og reka ökutæki sem nýtt getur metan sem eldsneyti. Enn sem komið er þá búa höfuðborgarbúar einir við þau forréttindi að geta nýtt metan á bíla sína en allt stefnir í að landsbyggðin fái einnig að njóta á næstu árum miðað við þróun mála. Engum dylst sá þjóðhagslegi ávinningur sem fólgin er í því fyrir Íslendinga að vera óháðir öðrum þjóðum um orku og geta nýtt eigið eldsneyti á farartæki sín, hvort heldur um er að ræða vélknúin ökutæki á landi eða báta og skip á sjó.
Metan eldsneyti er sá valkostur í samgöngum sem horft er til í stórauknum mæli um allan heim til umhverfisvænna og hagfelldra orkukerfisskipta í samgöngum. Fjölgun ökutækja sem nýta metan eldsneyti er mikil í heiminum og nemur hartnær 3 milljónum nýrra ökutækja á ári um þessar mundir. Framleiðendur stærri ökutækja hafa jafnframt í stórauknum mæli sett á markað ökutæki sem nýta metan eldsneyti á vökvaformi samamber fréttir á fréttaveitu Metan hf. www.metan.is
Metanvæðingin býður okkur bjarta framtíða í samgöngum












