Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:20 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 7,2 m/s
Hitastig: 2,87 °C

01. júlí 2010

Staðan í þjóðfélaginu endurspeglast í úrganginum

Í áhugaverðri frétt á pressan.is í dag er vakin athygli á þeirri staðreynda að heildarsorpmagn sem heimili og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu losa sig við hefur snarminnkað frá árinu 2007 þegar góðærið var í algleymingi. Framkvæmdastjóri SORPU segir ljóst að veruleg fylgni sé milli efnahagsástandsins og sorplosun landsmanna.

Frá árinu 2001 til 2007 jókst sorplosun íbúa á höfuðborgarsvæðinu um rúm 6,6% að meðaltali á ári. Stærsti kippurinn var árið 2003 þegar heildarlosun jókst um 17%.

Eftir að efnahagskreppan skall á með látum árið 2008 minnkaði hins vegar heildarlosun sorps um tæp 19% og var komin aftur í um það bil sömu tölur og árið 2002.

Fréttin í heild sinni

Til baka