Til fyrirmyndar
Til fyrirmyndar er yfirskrift hvatningarátaks í tilefni af því að hinn 29. júní nk. verða 30 ár liðin frá því að Íslendingar voru til fyrirmyndar með því að vera fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum.
“Fyrirmyndir þurfa ekki að vera fullkomnar, heldur first og fremst mannlegar.” www.tilfyrirmyndar.is
Allt frá stofnun SORPU hefur fyrirtækið lagt metnað í að vera leiðandi fyrirmynd á sviði endurvinnslu og úrgangsstjórnunar. Starfsmenn fyrirtækisins eru fyrirmyndir annarra íbúa á höfuðborgarsvæðisins en fyrirtækið hefur allt frá upphafi hvatt íbúa til aukinnar endurvinnslu og umhverfisverndar með því að flokka og skila úrgangi sínum. Umhverfismál og endurvinnsla koma okkur öllum við og er fræðslustarf einn mikilvægasti liður í starfsemi fyrirtækisins. Á undarförnum árum hefur verið mikil eftirspurn eftir því starfi hjá fyrirtækinu. Markmið fræðslunnar er að auka meðvitund folks um flokkun, endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs með það að leiðarljósi að gera fólk að ábyrgum og vistvænum neytendum. Með þessu vill fyrirtækið stuðla að aukinni vitund almennings gagnvart eigin neysluvenjum og virkja á jákvæðan hátt. SORPA upplifir umhverfisvernd í verki á hverjum degi og tekur virkan þátt í þróun nýrra og endurbættra endurvinnsluleiða.
Til hamingju með daginn og gangi okkur öllum vel.












