Góði hirðirinn-aðalsíða
(21:50 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 11,1 m/s
Hitastig: 3,39 °C

28. júní 2010

Nýkjörin stjórn SORPU

Í framhaldi af sveitarstjórnarkosningunum þann 29. maí sl. tekur ný stjórn til starfa hjá SORPU bs. frá og með mánudeginum 28. júní 2010. Stjórn byggðasamlagsins er skipuð einum fulltrúa og einum til vara frá hverju aðildarsveitarfélagi og skal hann vera aðalmaður í sveitarstjórn eða framkvæmdastjóri sveitarfélags. Sömu skilyrði gilda um varamenn sem hver sveitarstjórn tilnefnir. Kjörtímabil stjórnar er til tveggja ára frá upphafi kjörtímabils sveitarstjórna. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og skal formennska skiptast á milli aðildarfélaganna.

Í stjórn SORPU bs. sitja; Oddný Sturludóttir Reykjavík er formaður, Hafsteinn Karlsson Kópavogi er varaformaður, Margrét Gauja Magnúsdóttir fyrir Hafnarfjörð, Páll Hilmarsson Garðabæ, Hjördís Jóna Gísladóttir Álftanes, Herdís Sigurjóndóttir Mosfellsbæ og Bjarni Torfi Álfþórsson Seltjarnarnes. Framkvæmdastjóri er Björn H. Halldórsson. 

Til baka