Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:10 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 9,5 m/s
Hitastig: 3,00 °C

24. júní 2010

Best geymda leyndarmálið á markaðinum

Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað í orkumálum hér á landi og hefur áhugi almennings á umhverfisvænu eldsneyti aukist mikið. Metan er umhverfisvænt eldsneyti sem unnið er úr hauggasi og með því að nota metan í stað bensíns eða gasolíu er unnt að draga verulega úr mengun. SORPA framleiðir metan ökutækjaeldsneyti í Álfsnesi og hefur notkun á metanökutækjum stóraukist í heiminum jafnt sem á Íslandi. Það er til metaneldsneyti sem nýta má á þúsundir bíla í dag og hægt að stórauka framleiðsluna með samtakamætti ríkisins, sveitarfélaga, fyrirtækja og almennings. Metanvæðingin skapar tækifæri til að auka orkuöryggi þjóðarinnar með sjálfbærum og endurnýjanlegum hætti og skapar samhliða mikinn og margþættan ávinning fyrir umhverfið og íslenskt samfélag - minnsta losun gróðurhúsalofttegunda sem völ er á frá bílaflota landsins, gjaldeyrissparnaður, atvinnu- og nýsköpun og síðast en ekki síst, minni eldsneytiskostnaður.

Fjallað er ítarlega um metan í fréttablaðinu í dag og er þar að finna skemmtilegar og fróðlegar upplýsingar um best geymda leyndarmálið á markaðinum. 

Til baka