Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:20 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 6 m/s
Hitastig: 6,11 °C

 

30. júní 2005

Reykjavíkurborg tekur í notkun fyrsta metanknúna sorpbílinn hérlendis

Bíllinn gengur fyrir metani, vistvænu íslensku eldsneyti, sem unnið er úr sorpi borgarbúa á urðunarstað SORPU í Álfsnesi. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar hérlendis.


Mikill fjöldi vélknúinna ökutækja og mengun sem þeim fylgir er eitt helsta viðfangsefni á sviði umhverfismála á höfuðborgarsvæðinu. Það er því mikilvægur þáttur og stórt skref í átt að heilnæmara umhverfi að ökutæki á vegum borgarinnar gangi fyrir vistvænu eldneyti sem veldur minni mengandi útblæstri og eru hljóðlátari. Reykjavíkurborg rekur sorphirðu með tíu sorpbílum til söfnunar á heimilissorpi hjá borgarbúum. Þeir flytja síðan úrganginn til meðhöndlunar í móttökustöð SORPU í Gufunesi. Þar er hann rúmmálsminnkaður um 70% í þar til gerðum pressum og síðan fluttur til urðunar í Álfsnesi. Reykjavíkurborg stefnir að því að metanvæða alla sorpbílana á næstu árum.

Umhverfislegur ávinningur
Sorpbílar sem ganga fyrir metani valda um 80% minni sótmengun en hefðbundnir dísilbílar og útblástur köfnunarefnisoxíða er um 60% minni (köfnunarefnisoxíð valda m.a. gulu slikjunni sem oft sést við sjóndeildarhringinn á köldum vetrardögum). Bílvél knúin metangasi er um 50% hljóðlátari en hefðbundin dísilvél og útblástur koltvísýrings, sem veldur m.a. svokölluðum gróðurhúsaáhrifum er minni í samanburði við dísilbíla.
Með notkun metans, sem unnið er út sorpi borgarbúa við urðun hjá SORPU í Álfsnesi, má halda því fram að bíllinn verði sjálfbær um orku, þar sem hann mun flytja þann úrgang sem síðar verður að eldsneytinu sem hann gengur fyrir, þ.e. metani.

Bíllinn er fluttur inn af Öskju ehf. sem hefur umboð DaimlerChrysler AG, framleiðanda Mercedes-Benz bifreiða, hérlendis. Vélamiðstöð ehf. kaupir bílinn og leigir Umhverfissviði Reykjavíkurborgar sem sér um sorphirðu í Reykjavík.

Til baka