Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:20 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 6 m/s
Hitastig: 6,11 °C

 

28. nóvember 2005

Fyrirtæki fá greitt fyrir skil á bylgjupappa og filmuplasti

Bylgjupappi
Frá 1. júlí hefur SORPA bs. greitt fyrirtækjum fyrir flokkaðan bylgjupappa og filmuplast sem skilað er í móttökustöð SORPU í Gufunesi. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að fjárhæðin er lögð inn á viðskiptareikning fyrirtækisins hjá SORPU fyrir uppsafnað magn sem skilað hefur verið í mánuðinum. Aðeins er greitt fyrir þessi efni ef viðskipti nema 251 kg eða meira af bylgjupappa og 126 kg eða meira af filmuplasti hvern almanaksmánuð. Með þessu móti er mögulegt fyrir fyrirtæki að safna nokkurri fjárhæð. Fyrir 251-500 kg af bylgjupappa eru greiddar 3,42 krónur á kílóið en 4,67 krónur fyrir pappa sem fer yfir 500 kg. Fyrir 126-250 kg af filmuplasti fást 4,36 krónur, 6,23 krónur fyrir 251-375 kg en 8,72 krónur fyrir meira magn.


Einungis er greitt fyrir hreint efni
SORPA greiðir einungis fyrir flokkaðan bylgjupappa og flokkað filmuplast, án allra aðskotahluta. Aðskotahlutir s.s. frauðplast inni í pappakassa gerir SORPU ómögulegt að senda úrganginn í endurvinnslu. Þannig bylgjupappi færi þess vegna í urðun og fellur þá undir flokk 101 í gjaldskrá. Fyrirtæki þarf þá að greiða móttökugjöld fyrir pappann 9,11 krónur á kg. Hér er því kominn fjárhagslegur hvati fyrir fyrirtæki að flokka og skila bylgjupappa og filmuplasti og fá greitt fyrir í stað þess að borga sjálf fyrir losun þessarra flokka. Árlega eru um 10.000 til 15.000 tonn af bylgjupappa urðuð í Álfsnesi sem er um 10% alls þess magns sem þar er fargað. Það er von okkar að með þessu móti megi draga allverulega úr urðun úrgangs og um leið nýtist efnið til framleiðslu á nýjum vörum.
Hvernig á að flokka bylgjupappa
Hvernig á að flokka filmuplast

Við vonum að þetta nýja fyrirkomulag verði fyrirtækjum enn frekari hvati til að flokka og skila – til ágóða fyrir umhverfið, fyrirtækin og framtíðina.

Til baka