12. desember 2005
SORPA hefur undanfarin 3 ár lagt góðum málum lið í stað þess að senda viðskiptavinum sínum jólakort. Í ár rennur jólakortastyrkur SORPU til þriggja athvarfa á höfuðborgarsvæðinu fyrir geðfatlaða. Athvörfin þrjú, Vin í Reykjavík, Dvöl í Kópavogi og Lækur í Hafnarfirði eru öll rekin af Rauða krossi Íslands.
SORPA styrkir geðfatlaða í stað þess að senda jólakort
SORPA hefur undanfarin 3 ár lagt góðum málum lið í stað þess að senda viðskiptavinum sínum jólakort. Í ár rennur jólakortastyrkur SORPU til þriggja athvarfa á höfuðborgarsvæðinu fyrir geðfatlaða. Athvörfin þrjú, Vin í Reykjavík, Dvöl í Kópavogi og Lækur í Hafnarfirði eru öll rekin af Rauða krossi Íslands.
Markmið athvarfanna eru m.a. að auka lífsgildi geðsjúkra, að rjúfa einangrun þeirra við umhverfi sitt, að draga úr fordómum og að efla þekkingu sem flestra á málefnum geðsjúkra. Gestir koma þangað að eigin frumkvæði og er um breiðan hóp að ræða, karla og konur á aldrinum 20-70 ára. Athvörfin safna peningum í sérstaka ferðasjóði sem nýttir eru til ferðalaga gesta athvarfanna innanlands sem utan. Styrkur SORPU rennur í ferðasjóði athvarfanna.












