Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:20 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 6 m/s
Hitastig: 6,11 °C

 

28. desember 2005

KVIKNAR Í BÍL Í EIGU SORPU

Í gær, þriðjudaginn 27. desember kviknaði í bíl í eigu SORPU bs. Gerðist þetta á Miklubrautinni um kl. 15:00. Var þetta eitt af metanknúnum ökutækjum fyrirtækisins af gerðinni Citroen Berlingo, árgerð 2002, eitt af 6 ökutækjum slíkrar tegundar í eigu SORPU og eitt af 13 metanknúnum ökutækjum fyrirtækisins.


Eldsupptök
Ekki er vitað um eldsupptök og er unnið er að því að rannsaka málið. Þó beinist ákveðinn grunur að rafkerfi bílsins þó að á þessu stigi geti einungis verið um getgátur að ræða. Seljandi ökutækisins og umboðsmaður (Brimborg) er með málið í skoðun. SORPA bs og Metan hf ásamt Brimborg/Citroen munu vinna að því að upplýsa eins og kostur er hvað gerðist m.a. til að koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig.

Annað ökutæki sömu tegundar brann fyrir nokkrum vikum og sendi framleiðandi bílsins (Citroen) og gasbúnaðarins 4 menn hingað til lands til að rannsaka orsök þess bruna. Niðurstöður liggja ekki fyrir en gera má ráð fyrir að svipuð vinnubrögð verði varðandi þennan nýja bruna.

Minni íkveikjuhætta
Almennt er minni íkveikjuhætta af metani en venjulegu ökutækjaeldsneyti eins og bensíni og díselolíu. Mjög erfitt er að kveikja í metani miðað við t.d. bensín. Til samanburðar má skoða sjálfsíkvekjuhitastig („autoignition temperature“) mismunandi eldsneytis:

Bensín ~ 257 °C
Díselolía ~ 316 °C
Metan ~ 540 °C

(Heimild: www.eere.energy.gov/afdc/pdfs/fueltable.pdf).

Að auki þarf metanið að vera í mjög ákveðinni blöndu súrefnis til að það brenni yfir höfuð (5-15 % af rúmmáli í lofti).

Metanið er geymt á kútum við um 200 bar þrýsting (samanborið við venjulegan grillgaskút sem er 10-15 bör). Þetta er sá hámarksþrýstingur sem gasið er geymt við á ökutækinu en framleiðendur prófa kútana við hærri þrýsting. Raunverulegt brotþol kútanna er venjulega 1.200-1.500 bör. Kútarnir eru síðan útbúnir með sérstökum ventlum sem létta á kútunum fari þrýstingur yfir ákveðin mörk. Metanökutæki eru síðan árekstrarprófuð eins og önnur ökutæki.

5 milljónir metanökutækja í umferð
Í dag eru um 5 milljónir metanökutækja í umferð, flest í Suður-Ameríku. Í Evrópu eru flest ökutækin á Ítalíu sem á sér langa hefð í notkun jarðgass (metans). Þessar þjóðir, sem og aðrar sem nota mikið metan hafa ekki séð ástæðu til að vera með sérstakan viðbúnað vegna þessara ökutækja kannski vegna þess að í þeim löndum er gasnotkun víðtækari en þekkist hér á landi. Íslendingar eru ekki jafn vanir gasnotkun og margar aðrar þjóðir og því ekki skrýtið að óhöpp tengd gasnotkun veki eftirtekt og kalli fram spurningar. Nánari upplýsingar um eiginleika metans og umhverfisávinning af notkun þess má finna á heimasíðu Metans hf, www.metan.is.

Til baka