Ný kynslóð metanbíla
Ný og endurbætt kynslóð metanbíla frá Volkswagen, EcoFuel, er komin á markað hér á landi og afhenti Knútur G. Hauksson, forstjóri HEKLU, fulltrúum Sorpu sex slíka bíla við athöfn í höfuðstöðvum HEKLU í dag. Með tilkomu nýju bílanna verða metanbílar á götum borgarinnar orðnir um 60 talsins en sex ár eru frá því að fyrstu bílarnir komu á markað hérlendis. HEKLA hefur flutt inn ríflega helming þessara bíla, eða alls 35 metanbíla.
Nýju Sorpu-bílarnir eru af gerðinni VW Caddy EcoFuel og VW Touran Trendline EcoFuel með tvíbrennihreyfli sem gengur fyrir metani og einnig bensíni þegar þörf er á. Í samanburði við eldri metanbílana munar mest um langdrægni nýju bílanna. Kemst Caddyinn um 430 km á metanfyllingunni og Touran bíllinn um 310 km en meðaldrægni gömlu bílanna er einungis um 130 km á hverri fyllingu.
Nýju bílarnir eru kraftmeiri og minna fer fyrir metankútunum en í gömlu bílunum. Sömu öryggiskröfur gilda hér á landi um metanbíla og aðra bíla en engrar sérstakrar varúðar þarf að gæta í daglegri umgengni við þá. Erlendar rannsóknir sýna einnig að þeir eru öruggari en bæði bensín- og dísilbílar.
Nánar á heimasíðu Heklu












