Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:20 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 6 m/s
Hitastig: 6,11 °C

 

28. nóvember 2006

Viðurkenning fyrir listaverk úr rusli

Leiðbeinendur Vinnuskólans í Reykjavík sem stýrðu nemendum í 8. bekk komu í fræðsluferð til Sorpu í sumar og gátu í framhaldi af því virkjað nemendur sína til að taka þátt í verkefni sem kallaðist Sköpun úr rusli. Þátttaka í verkefninu var góð og margar skemmtilegar hugmyndir bárust. Dómnefnd fór yfir verkin og var ákveðið að veita nemendum í Engjaskóla og Réttarholtsskóla viðurkenningar fyrir listaverkin sem þeir sköpuðu á þessum vettvangi.


Nemendur í Engjaskóla fengu viðurkenningu fyrir listaverk sem gert var úr rusli. Nemendurnir sem voru í hópi Sigríðar Valdimarsdóttur leiðbeinanda, hönnuðu og smíðuðu hjólbörur og fleiri verkfæri úr mjólkurfernum og dósum.

Nemendur í Réttarholtsskóla fengu viðurkenningu fyrir gjörning sem bar nafnið “ruslið hreinsar okkur og er hluti af okkur”. Leiðbeinandi hópsins var Reynir Smári Atlason.
Sérhver nemandi fékk viðurkenningarskjal og gjafabréf.

Í dómnefnd sátu: Gyða S. Björnsdóttir hjá Sorpu og Kristín Lóa Ólafsdóttir og Katrín Georgsdóttir hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar.

Til baka