Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:20 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 6 m/s
Hitastig: 6,11 °C

 

14. desember 2006

Hvað er í heimilissorpinu?

Blár grenndargámur er fyrir pappír en grænn grenndargámur er fyrir fernur og aðrar umbúðir úr sléttum pappa.
Í nóvember á ári hverju framkvæmir SORPA rannsóknarverkefni sem kallast flokkun heimilissorps. Markmiðið með verkefninu er að skoða samsetningu heimilissorpsins og þróun í mismunandi efnisflokkum milli ára. Athygli vakti að þessu sinni að dagblöð, tímarit og auglýsingapóstur eru orðin stærsti þáttur heimilissorpsins eða um 27% þess. Á undanförnum árum hafa matarleifar verið stærsti flokkurinn en nú hefur pappírinn tekið forustuna.


Árið 2002 var dagblaða- og tímaritapappír einungis um 12% heimilissorpsins eða um 5.040 tonn yfir árið en nú eru þau um 11.300 tonn. Á sama tíma eykst magn dagblaða og tímarita sem skilað er til endurvinnslu einnig og má búast við því að á árinu 2006 nái útflutningur pappírs sem skilað er í grenndargáma og á endurvinnslustöðvar um 8.000 tonnum. Alls berast því hátt í 20.000 tonn af dagblaða- og tímaritapappír til SORPU, þar af 58% með blönduðu sorpi og um 42% til endurvinnslu.
Það kostar sveitafélögin á höfuðborgarsvæðinu umtalsverða fjármuni að losna við þennan pappír en þess má geta að móttöku- og meðhöndlunargjöld eru um 70% lægri fyrir sveitafélögin ef íbúar skila pappír í grenndargáma og á endurvinnslustöðvar heldur en ef pappírinn er settur ásamt blönduðu sorpi í heimilistunnuna að ekki sé nú talað um umhverfislega ávinningin af því. Pappírinn er endurunninn í Svíþjóð og úr honum eru framleiddar salernisrúllur og eldhúsrúllur svo dæmi sé tekið. Fyrir hvert kíló af pappír sem fer til endurvinnslu sparast um 270 g af koltvíoxíðútblæstri. 

Hér má skoða niðurstöður verkefnisins í samanburði við árin 2004 og 2005.
Niðurstöður ársins 2006 í kökuriti.

Einnig má skoða niðurstöður verkefnisins lengra aftur í tímann í ársskýrslum SORPU.

Til baka