Góði hirðirinn-aðalsíða
(19:10 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 5,8 m/s
Hitastig: 6,23 °C

 

18. desember 2006

Samhjálp fær jólakortastyrk SORPU í ár

Heiðar Guðnason forstöðumaður Samhjálpar tók við styrknum en með honum á myndinni eru Sigríður B. Einarsdóttir, skrifstofustjóri SORPU og Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri SORPU.
Sú hefð hefur skapast að fyrir jólin veitir SORPA styrk í stað þess að senda viðskiptavinum sínum jólakort. Í ár var það kaffistofa Samhjálpar sem hlaut styrk að upphæð 200.000 krónur.
Kaffistofa Samhjálpar er fyrir utangarðsfólk og aðra aðstöðulausa. Að jafnaði eru heimsóknir um 70 hvern dag sem kaffistofan er opin. Flestir hafa komið 110 manns á kaffistofuna á einum degi. Fá þeir kaffisopa að vild og meðlæti, í viðbót við félagsskap og hlýju í kroppinn. Dagblöð og ýmis rit liggja frammi á kaffistofunni. Gera má ráð fyrir því að yfir 100.000 kaffibollar séu bornir þar fram á ári hverju.
Síðustu árin hafa heimsóknir á kaffistofuna verið allt að 25 þúsund á ári og hefur heimsóknum fjölgað jafnt og þétt en þessar heimsóknir voru á árinu 2000 rúmlega 20 þúsund. Heldur dró úr fjölda heimsókna á milli áranna 2004 og 2005. Á árinu 2005 voru 1019 einstaklingar á bakvið heimsóknirnar, 932 karlar og 87 konur. Það er því ljóst að starfsemin er afar mikilvæg, enda hafa margir talað um að kaffistofan hafi bjargað lífi þeirra.


Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Samhjálpar, www.samhjalp.is.

Til baka