Góði hirðirinn - styrkumsókn
Góði hirðirinn-aðalsíða
(02:40 20/6)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: A 1,9 m/s
Hitastig: 6,83 °C
18. mars 2010

Ársreikningur SORPU bs 2009

Ársreikningur SORPU bs 2009 var samþykktur og áritaður af stjórn fyrirtækisins 1. mars 2010. Rekstrartekjur SORPU námu rétt rúmlega 1,8 milljörðum króna sem er um 10% lækkun á milli ára. Rekstrargjöld lækkuðu einnig á milli ára en þau fóru niður um 8% og námu um 1,763 milljörðum króna. Hagnaður SORPU eftir fjármagnsliði nam 65 milljónum króna samanborið við 4,15 milljón króna árið 2008.

Ársreikningur SORPU 2009

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri SORPU bs, segir að aðhald í rekstri fyrirtækisins, hagræðing, samstaða starfsfólks og árvekni hafi átt stóran þátt í að SORPA skilaði hagnaði á árinu 2009, auk þess sem mikilvægum verkefnum hafi verið frestað. Stjórnendur og starfsmenn lögðust á eitt og þakkar framkvæmdastjóri starfsmönnum fyrirtækisins fyrir þann árangur sem náðist þrátt fyrir samdrátt í magni úrgangs og þar með tekjum fyrirtækisins. Magn úrgangs sem barst fyrirtækinu á árinu 2009 dróst saman um 26% samanborið við árið 2008 en sé horft til úrgangs frá heimilum þá dróst hann saman um 11% á árinu samanborið við 2008. Af þessu má sjá að samdráttur í umsvifum fyrirtækja hefur verið meiri á árinu 2009 en hjá heimilum og er þetta beinn mælikvarið á umsvif í þjóðfélaginu.

Viðhorf og ánægja með fyrirtækið hefur verið á jafnri og þéttri uppleið sem og ánægja með þjónustu endurvinnslustöðvanna enda voru gerðar ýmsar breytingar sem snúa að auknu öryggi og aðgengi viðskiptavina stöðvanna.

SORPA veitti um 19 milljóna króna styrk frá rekstri Góða hirðisins í árslok 2009 en styrkurinn fór til nokkurra skilgreindra góðgerðar- og líknarmála. Markmiðið með styrkjum Góða hirðisins var að hjálpa fólki til sjálfshjálpar.

Leiðarljós SORPU bs árið 2010 verður áfram góð þjónusta þrátt fyrir aðhald og hagræðingu í rekstri þar sem því verður við komið, ásamt því að viðhalda góðu samstarfi stjórnenda og starfsfólks.

Til baka