25. febrúar 2010
Opnunarhátíð að Breiðhellu
Laugardaginn 27. febrúar nk. tökum við stórt skref í þjónustu okkar við höfuðborgarbúa. Þann dag kl 12 opnum við stærstu og fullkomnustu endurvinnslustöð okkar til þessa að Breiðhellu 8-10, Hafnarfirði. Sjá kort
Í tilefni dagsins gerum við okkur daga mun og hvetjum alla höfuðborgarbúa til þátttöku í viðburðum dagsins. Trjálfarnir úr Stundinni okkar mæta á staðinn og kynna stöðina með sínum hætti, barnakór Öldutúnsskóla syngur, FH, Haukar og Stjarnan keppa í flokkunarboðhlaupi, blöðrur og Trjálfasamstæðuspil fyrir börnin, heitt kakó, kleinur og vöfflur í boði fyrir alla og allir fá flokkunarpoka með sér heim.
Dagskránni líkur kl 16.












