25. febrúar 2010
Trjálfarnir skemmtilegu úr Stundinni okkar eru loksins komnir á netið
Á heimasíðu SORPU er nú að finna fyrstu þáttaröðina af Trjálfunum. SORPA er í samstarfi við Ríkissjónvarpið um framleiðslu á innslögum um Tré-álfa sem kalla sig Trjálfa.Trjálfarnir Reynir Víðir Lyngdal og Börkur Birkir eru umhverfisvænir tré-álfar sem birtast okkur á skjánum í Stundinni okkar. Trjálfarnir eru duglegir við að fræða börnin um umhverfismál, flokkun, endurvinnslu og endurnýtingu og stuðla þannig að meðvitaðri æsku í samfélaginu. Upptökur á þriðju þáttaröðinni um þessa vinsælu Tré-álfa fer í gang á næstunni og verða sýndir í Stundinni okkar í haust.
1. Þáttaröðin af Trjálfunum









