Morgunopnun á nýrri og glæsilegri endurvinnslustöð í Hafnarfirði
Þann 27. febrúar n.k. verður opnuð ný og fullkomin endurvinnslustöð við Breiðhellu 8-10 í Hafnarfirði. Opnunartími stöðvarinnar er alla virka daga frá 8:00 - 19:30 og 10:00 - 18:30 um helgar. Sama dag verður stöðinni við Miðhraun í Garðabæ lokað og starfsemi þar lögð af. Nýja stöðin er glæsileg, rúmgóð og með öryggi allra í fyrirrúmi. Unnið var útfrá nýrri hugsun hvað varðar öryggismál og aðgengi með því að aðskilja umferð viðskiptavina og þjónustuaðila um stöðina. Athafnarými viðskiptavina er með besta móti sem auðveldar þeim að sinna erindum sínum í ró og næði án þess að lenda í þrengslum og biðröðum. Á stöðinni er tekið við hátt í þrjátíu úrgangsflokkum og sérstök gryfja er á svæðinu fyrir garðaúrgang.
Breiðhella GPS hnit 64° 02‘449 N - 21° 59‘491 W












