Fræðslustarf SORPU komið á fulla ferð
Fræðsla gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að umhverfismálum. SORPA leggur sitt af mörkum með því að bjóða upp á fræðslu þar sem fjallað er um umhverfissjónarmið við meðhöndlun úrgangs. Markmiðið er, að þeir sem fræðsluna hljóta, fái tilfinningu fyrir því hvernig þeir geti orðið ábyrgir og vistvænir neytendur. Í fræðslunni er skoðað hvernig hægt er að lágmarka úrgang sem verður til hjá hverjum og einum og hvernig má nýta það hráefni sem felst í úrgangi með því að flokka og skila til endurnýtingar. Á hverju ári koma um 2500 einstaklingar á öllum aldri í slíka fræðslu og er stærsti hópurinn nemendur leik- og grunnskóla.
SORPA hefur aðlagað fræðslustarfið að breyttum samfélagsaðstæðum og bíður nú upp á tvennskonar fræðsluferðir fyrir nemendur. Annars vegar kemur hópurinn með rútu á skrifstofu fyrirtækisins í Gufunesi þar sem starfsemi fyrirtækisins er kynnt og lögð sérstök áhersla á umræður og myndræna framsetningu, svo er ekið í gegn um móttökustöðina þar sem starfsemi stöðvarinnar er útskýrð fyrir börnunum og þau sjá með eigin augum hvernig vinnslu á úrgangi er háttað.
Hins vegar er hægt að panta fræðsluferðir á endurvinnslustöðvar fyrir hádegi alla virka daga og tekur fræðslan um 30 mínútur. Nemendur geta komið með strætó á endurvinnslustöðvar SOPRU þar sem fræðslufulltrúi tekur er á móti þeim. Gengið er í gegn um stöðina, starfsemi hennar útskýrð fyrir nemendum, börnin fá tækifæri til að skoða mismunandi flokka úrgangs og þau frædd um úrvinnslu hans. Algengt er að nemendur komi með flokkaðan úrgang með sér til að setja í viðeigandi gáma, sem gerir þau að virkum þátttakendum og heimsóknin verður ánægjulegri fyrir vikið.
Frekari upplýsingar varðandi fræðslustarfið og tímapantanir er að finna á heimasíðunni okkar www.sorpa.is eða með því að smella hér.













