Almanak 2010 komið út
Almanak SORPU bs er nú komið út í níunda skipti en það var að þessu sinni unnið í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Hafnarborgar og menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar. Almanakinu er dreift á öllum starfsstöðvum SORPU, s.s. á endurvinnslustöðvum og í Góða hirðinum, nytjamarkaði SORPU og líknarfélaga. Það er einnig sent í alla skóla og leikskóla á höfuðborgarsvæðinu, sem og aðra samstarfsaðila SORPU.
Í september síðastliðnum var haldin námstefna fyrir leik- og grunnskólakennara um leikfangagerð úr verðlausum efnum á vegum Hönnunarsafns Íslands og Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar og var SORPA styrktaraðili verkefnisins.
Á námstefnunni fjallaði einn fremsti sérfræðingur Indlands á sviði hefðbundinna leikfanga, Sudarshan Khanna prófessor, um leikfangagerð úr einföldum og endurnýttum efniviði. Í kjölfarið var svo verkleg kennsla þar sem um 200 kennarar gerðu nokkur einföld en heillandi leikföng byggð á hönnun og hugmyndafræði Sudarshans.
Á næstu vikum þar á eftir komu nemendur úr öllum grunn- og leikskólum Garðabæjar í efnisveitu og vinnusmiðju á Garðatorgi og unnu áfram með ýmsar af hugmyndum Sudarshans Khanna. Fleiri hönnuðir voru einnig fengnir til liðs við verkefnið t.d. hönnunarteymi frá „Ráðuneytinu“ og „Lúka Design“ og komu þeir með hugmyndir að nokkrum áhugaverðum leikföngum og leikjum til viðbótar úr mismunandi efnivið.
Afrakstur þessarar vinnu í efnisveitunni er einungis byrjunin á vinnuferli fyrir Listadaga 2010 þar sem þemað verður „að leika sér“. Í efnisveitunni hafa nemendur þróað hugmyndir út frá efni sem ekki er lengur not fyrir. Hugmyndin er að útvíkka hugsanagang barna og kenna þeim að sjá möguleikana í nýjum efnivið. Umbreyting verðlausra hluta í leikföng er skapandi og gefur sköpunargleði og fagurfræði barnanna færi á að njóta sín. Hugmyndin er að börnin og við öll verðum meðvitaðri um umhverfi okkar og nærsamfélag með því að að skoða betur hverju
við köstum burt og hvað má nýta Í nútíma samfélagi hefur verið viðtekin venja að henda því sem ekki er þörf fyrir lengur og einnota umbúðir fara í ruslið svo tonnum skiptir á hverjum degi. Almanakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar og sýna fram á að í ruslinu geta falist verðmæti. Efniviður í allskyns nýja hluti leynist víða og ruslið getur orðið að einstökum listaverkum eða nýjum vörum og umbúðum við endurvinnslu.









