27. desember 2009
Tekið á móti jólatrjám á endurvinnslustöðvum
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu munu að öllu jöfnu sækja jólatrén til íbúa svæðisins nema Reykjavík og veita þau nánari upplýsingar um það hvert fyrir sig. Þeim sem ekki geta nýtt sér þjónustu sveitarfélaganna er bent á endurvinnslustöðvar SORPU.
Á endurvinnslustöðvunum sé tekið við jólatrjám frá einstaklingum án gjaldtöku, en fyrirtæki, verktakar og stofnanir greiða móttökugjöld samkvæmt gjaldskrá stöðvanna fyrir allan úrgang, þ.m.t. jólatré, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Hámarksfarmur á endurvinnslustöðvum er 2m3. Aðilar með stærri farma er bent á móttökustöðina í Gufunesi þar sem er greitt fyrir farma eftir vigt.









