23. desember 2009
Jólakortastyrkur SORPU rann til PKU félagsins
Þriðjudaginn 22. desember veitti SORPA bs sinn árlega jólastyrk. Í anda jólanna hefur sú hefð skapast hjá SORPU að í stað þess að senda viðskiptavinum fyrirtækisins jólakort er góðu málefni lagt lið með fjárstyrk að upphæð 200.000 krónur.
PKU félagið á Íslandi er félag einstaklinga með PKU eða skylda efnaskiptagalla, foreldra þeirra, ættingja og annars áhugafólks um velferð þeirra. Félagið var stofnað 1. apríl 1992 og er tilgangur félagsins m.a. að miðla upplýsingum og fræðslu um PKU og skylda efnaskiptasjúkdóma, fylgjast með rannsóknum og þróun og vera vettvangur fyrir gagnkvæman stuðning einstaklinga og fjölskyldna.












