Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:10 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 9,5 m/s
Hitastig: 3,00 °C

28. desember 2009

Breytingar á gjaldskrá taka gildi 1. janúar

Á stjórnarfundi SORPU bs þann 14.12 var samþykkt að frá og með 1. janúar 2010 verði tekið gjald fyrir garðaúrgang, s.s. gras, trjágreinar, mold og annan jarðveg, á endurvinnslustöðvum SORPU á höfuðborgarsvæðinu. Þeir viðskiptavinir sem koma með gras eða greinar, gefst á móti kostur á að sækja sér moltu eða moltublöndu sem er afurð úr endurunnum trjágreinum og grasi og fyrirtaks jarðvegsbætir fyrir allan gróður.

Hvernig fæ ég moltu?
Þegar garðaúrgangi, grasi og trjágreinum,  hefur verið skilað inn á endurvinnslustöð og búið er að greiða fyrir fær viðkomandi afhentan miða. Afgreiðslutími moltunnar verður síðan auglýstur sérstaklega og þá verður hægt að framvísa miðanum á endurvinnslustöð gegn ½ m3 af moltu að andvirði 2.288 kr eða moltublöndu á meðan birgðir endast. Viðskiptavinir sjá sjálfir um að moka moltunni á kerrur eða í ílát. Gjaldskrá moltublöndu má finna hér.

Heimajarðgerð
Með heimajarðgerð má spara sér flutning og kostnað við losun á garðaúrgangi og framleiða eigin moltu sem nýtist sem áburður í garðinum. Á heimasíðu SORPU,www.sorpa.is má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um heimajarðgerð.

Frá og með 1. janúar næstkomandi tekur breytt gjaldskrá SORPU gildi. Hækkun gjaldskrár frá fyrra tímabili er samkvæmt vísitölu.

Til baka