Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:00 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 10,5 m/s
Hitastig: 3,19 °C

22. desember 2009

Jólapappír og aðrar umbúðir

Jólapappír má ekki setja í pappírsgáma.
Sterkir litir jólapappírsins og þá sérstaklega gylling og glimmerskrautið sem gerir hann svo fallegan, gera það að verkum að hann er ónothæfur til endurvinnslu. Hvetjum við ykkur til að endurnota þann pappír sem þið getið sjálf, leyfið börnunum að föndra úr þessum fallega pappír eða hendið honum. Hann á því miður ekki heima í pappírsgámum til endurvinnslu..

Pappakössum (bylgjupappa) á að skila í pappagáma á endurvinnslustöðvum SORPU. Bylgjupappi er oft í umbúðum utan um leikföng og er fyrirtaks hráefni til endurvinnslu. Litfagrir myndkassar má setja i endurvinnslu eins og aðrir bylgjupappakassar. Fjarlægja skal allt plast úr kössunum.

Umbúðum úr sléttum pappa er hægt að skila í bláa grenndargáma og á endurvinnslustöðvar. Brjótið pappaumbúðir saman svo þær taki minna pláss og fjarlægið umbúðir úr plasti sem geta leynst inni í þeim.

Plastumbúðum má skila í græna grenndargáma og á endurvinnslustöðvar.


Til baka