Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:20 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 7,2 m/s
Hitastig: 2,87 °C

21. desember 2009

Sorphirða Reykjavíkur hirðir ekki jólatré í ár

Jólatré höfuðborgarbúa verða aö öllu jöfnu sótt til íbúa líkt og undafarin ár nema í Reykjavík. Samkvæmt tæknimönnum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu munu sveitarfélögin sækja jólatré til íbúa eins og tíðkast hefur nema Reykjavíkurborg. Sjá frekari upplýsingar á reykjavik.is og heimasíðum viðkomandi sveitarfélaga.

Endurvinnslustöðvar SORPU eru opnar sem hér segir um hátíðarnar og er íbúum velkomið að skila jólatrjánum í tilheyrandi gám á stöðvunum sér að kostnaðarlausu.

SORPA er móttökuaðili úrgangs en sér ekki um sorphirðu, hvorki hjá almenningi né fyrirtækjum, sorphirðan er á vegum annarra aðila sem sjá um hana fyrir sveitarfélögin.
SORPA sækir ekki úrgang til þín en þér er velkomið að skila honum inn á endurvinnslustöðvar.

Til baka