10 milljónir undir yfirskriftinni "Hjálpum fólki til sjálfshjálpar"
SORPA veitti styrk til tíu aðila í húsnæði Góða hirðisins í dag. Styrkirnir voru veittir undir yfirskriftinni „Hjálpum fólki til sjálfshjálpar“, svo sem til menntunar, endurhæfingar og sjálfsbjargar. Leitast var við að styrkja efnaminni börn og ungmenni. Heildarupphæðin að þessu sinni var 10 milljónir króna og skiptist eins og hér segir: Félag lesblindra til útgáfu bókar sem nýtast á kennurum og foreldrum, Jerico til kynningar og átaksstarfs um einelti í grunn-og framhaldsskólum, Hugarafl til geðfræðslu og vinna gegn fordómum í grunn- og framhaldsskólum, Framtíðarsjóður Hjálparstarfs kirkjunnar til hjálpar fjölskyldum með börn á grunn- og framhaldsskóla aldri til stuðnings við félags-og skólastarf barnanna, Rauða kross húsið Borgartúni til Mentor/mentee verkefnis sem nú er í mótun með sérstakri áherslu á ungt fólk, Hringsjá – lesgreining, námskeið, gagnagrunnur og þjálfun fyrir lesblinda, Starfsmenntasjóður bandalags kvenna, Heilsuhýsi á hjólum – Rauði krossinn – Heilsufarsþjónusta á hjólum, Eyjaslóð og Konukot til hjálpar heimilislausum.
Fyrr á þessu ári veitti SORPA styrki til átta aðila upp á alls 8 milljónir króna sem gerir alls 18 milljónir í styrki á árinu sem er að líða.
Markmið SORPU er að auka meðvitund fólks um flokkun, endurvinnslu og stuðla að endurnýtingu úrgangs, minnka sóun og láta gott af sér leiða. Fyrirtækið leggur metnaði í að styðja íslenskt samfélag með fjölbreyttum hætti. Gott samstarf starfsmanna endurvinnslustöðva SORPU og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gerir það að verkum að á hverju ári er hægt er að styrkja góð málefni. Allt frá árinu 1999 hefur ágóði af sölu í Góða hirðinum runnið til góðgerðamála.
Í Góða hirðinum má finna margan fjársjóðinn. t.d. sófa, stóla, borð, skápa, þvottavélar, ísskápa og ýmis önnur raftæki. Einnig eru þar smærri hlutir á boðstólnum eins og bækur, plötur, leikföng, leirtau og ýmsir skrautmunir.












