SORPA veitir veglegan styrk til góðgerðarmála ellefta árið í röð
Föstudaginn 4. september veitti SORPA styrk til átta aðila. Styrkirnir voru veittir undir yfirskriftinni „Hjálpum fólki til sjálfshjálpar“, svo sem til menntunar, endurhæfingar og sjálfsbjargar. Styrkveitingin fór fram í verslun Góða hirðisins að Fellsmúla 28 að viðstöddum aðstandendum félaganna og starfsmönnum SORPU og Góða hirðisins. Að þessu sinni er heildarupphæðin 8 milljónir króna og skiptist hún á eftirtalda aðila: Bandalag kvenna í starfsmenntasjóð, Framtíðarsjóður hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Rauða kross húsið Borgartúni, Foreldrahús og Kraftur stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.
Markmið SORPU er að auka meðvitund fólks um flokkun, endurvinnslu og stuðla að endurnýtingu úrgangs, minnka sóun og láta gott af sér leiða. Fyrirtækið leggur metnaði í að styðja íslenskt samfélag með fjölbreyttum hætti. Gott samstarf starfsmanna endurvinnslustöðva SORPU og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gerir það að verkum að á hverju ári er hægt er að styrkja góð málefni. Allt frá árinu 1999 hefur ágóði af sölu í Góða hirðinum runnið til góðgerðamála.
Í Góða hirðinum má finna allt milli himins og jarðar. T.d. sófa, stóla, borð, skápa, þvottavélar, ísskápa og ýmis önnur raftæki. Einnig eru þar smærri hlutir á boðstólnum eins og bækur, plötur, leikföng, leirtau og ýmsir skrautmunir.













