Breytingar á grenndargámakerfinu
Nú má setja plastumbúðir í grænu gámana
SORPA bs vill koma því á framfæri við íbúa höfuðborgarsvæðisins að nú um áramótin munu breytingar eiga sér stað á grenndargámakerfinu. Aukin tækni í flokkunarmálum gerir okkur nú kleift að endurvinna pappír og pappírsumbúðir á sama hátt. Móttökuaðili SORPU fyrir endurvinnanlegan pappír í Svíþjóð getur unnið pappírsefnið enn betur en áður hefur þekkst, flokkað það frekar og endurunnið í nýjar vörur. Í ljósi þess hefur SORPA ákveðið að auka þjónustu sína enn frekar og auðvelda fólki flokkun með því að samnýta bláa grenndargáminn undir bæði pappír og pappírsumbúðir og taka á móti plastumbúðum í grænan grenndargám. Plastumbúðirnar verða ýmist nýttar til orkuvinnslu eða til endurnýtingar bæði hérlendis og erlendis. Við viljum hvetja íbúa höfuðborgarsvæðsins að taka vel á móti aukinni þjónustu í flokkun og nýta sér grenndargámakerfið enn betur en áður. Grenndarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu eru um 80 talsins og á hverri stöð eru tveir gámar. Nú er hægt að nýta ferðina enn betur og hafa með sér allar plastumbúðir og skila í græna grenndargáminn og pappír og pappírsumbúðir í bláa gáminn.
Stökkbreyttir grenndargámar, grænir fyrir plastumbúðir, bláir fyrir pappír og pappírsumbúðir, þér að kostnaðarlausu og alltaf í leiðinni.












