Jólakortastyrkur SORPU rann til Konukots
Föstudaginn 19. desember veitti SORPA bs sinn árlega jólastyrk. Í anda jólanna hefur sú hefð skapast hjá SORPU að í stað þess að senda viðskiptavinum fyrirtækisins jólakort er góðu málefni lagt lið með fjárstyrk. Að þessu sinni rann styrkurinn til Konukots, næturathvarfs fyrir heimilislausar konur. Styrkurinn er að upphæð 200.000 krónur og rennur í styrktarsjóð sem hefur það markmið að aðstoða konur við að sækja þá þjónustu til ríkis og sveitafélaga sem þær þurfa á að halda hverju sinni.
Konukot er samstarfsverkefni Reykjavíkurdeildar Rauða krossins og Reykavíkurborgar. Í Konukoti er reynt að skapa þeim sem þar dvelja þægilegt og heimilislegt andrúmsloft, þar sem grundvallarmarkmið Rauða krossins eru höfð að leiðarljósi. Frekari upplýsingar er að finna á www.redcross.is
Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri SORPU, afhenti Kristíni Helgu, umsjónarmanni Konukots styrkinn.












