Góði hirðirinn-aðalsíða
(17:10 17/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: V 7,1 m/s
Hitastig: 6,55 °C

 

23. desember 2008

Jólapappír og aðrar umbúðir

Jólapappír má ekki setja í pappírsgáma. 
Sterkir litir jólapappírsins og þá sérstaklega gylling og glimmerskrautið sem gerir hann svo fallegan, gera það að verkum að hann er ódrjúgur til endurvinnslu.

Pappakössum (bylgjupappa) á að skila í pappagáma á endurvinnslustöðvum SORPU. Bylgjupappi er oft í umbúðum utan um leikföng og er fyrirtaks hráefni til endur-vinnslu.

Umbúðum úr sléttum pappa er hægt að skila í græna grenndargáma og á endurvinnslustöðvar. Brjótið pappaumbúðir saman svo þær taki minna pláss og fjarlægið umbúðir úr plasti sem geta leynst inni í þeim.

Jólatréð
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarin ár sótt jólatré til íbúa svæðisins og veita þau nánari upplýsingar um það hvert fyrir sig. Þeim sem ekki geta nýtt sér þjónustu sveitarfélaganna er bent á endurvinnslustöðvar SORPU, þar sem einnig er tekið við jólatrjám.

Til baka