Góði hirðirinn-aðalsíða
(21:50 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 11,1 m/s
Hitastig: 3,39 °C

03. desember 2007

Straumur til framtíðar

Marcus Ocklind, sölustjóri IL Recycling í Svíþjóð og samstarfsaðili SORPU í móttöku pappírsúrgangs frá upphafi, flytur ávarp.
Föstudaginn 30. nóvember var nýtt endurvinnslusvæði í móttökustöð SORPU í Gufunesi formlega tekið í notkun. Endurvinnslusvæðið ber nafnið Straumur til framtíðar. Sjö stjórnarmenn Sorpu, einn fulltrúi fyrir hvert sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu, klipptu á borða og í kjölfar var vélin Linda, framtíðardísin í móttökustöð SORPU, ræst. Linda er árrisul og baggar nokkur hundruð tonn fyrir hádegi, ýmist dagblöð gærdagsins, bylgjupappa, sem hefur þjónað sem pizza- eða flutningskassi, eða fernur og morgunkornspakka sem ganga undir heitinu; umbúðir úr sléttum pappa. Í sitthvorn baggann að sjálfsögðu enda er forsenda endurnýtingar og endurvinnslu vönduð flokkun úrgangs. Allt sem Linda baggar með 140 tonna pressuátaki sínu streymir áfram til Svíþjóðar og eignast nýtt líf og hlutverk í framtíðinni.


Vinkonur Lindu í móttökustöðinni eru Rósa og Pála sem standa hinu megin í húsinu en þeirra hlutverk er að bagga allan blandaðan úrgang sem er ónýtanlegur og fer á urðunarstað SORPU í Álfsnesi á Kjalarnesi. Strákurinn í hópnum er Herkúles sem stendur vígalegur í miðju húsinu og tætir stóran og rúmmálsfrekan úrgang sem fer einnig til urðunar.

Markmið SORPU er að senda enn meira af endurvinnanlegum efnum til Svíþjóðar og minnka urðun á vel nýtanlegu hráefni. Til að leggja áherslu á þetta markmið og þær kröfur sem umhverfið gerir, hafa breytingar verið gerðar í móttökustöðinni sem aðgreina endurvinnanlegan og blandaðan úrgang enn betur. Í hægri enda stöðvarinnar, þar sem Linda stendur vígaleg, koma nú einungis endurvinnanleg efni inn á vel aðgreind svæði. Þessi breyting var gerð til að koma betur til móts við óskir viðskiptavina með að gera ferla sýnilegri, hreinlegri og skilvirkari í gegnum stöðina. Aukin afköst, enn meiri sýnileiki og betri nýting þess hráefnis sem SORPA sendir til endurvinnslu er það sem fyrirtækið leggur metnað sinn í og starfar samkvæmt. Þessu er náð fram með góðu samstarfi við íbúa og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.

Til baka