Góði hirðirinn-aðalsíða
(21:30 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 9,7 m/s
Hitastig: 3,85 °C

10. desember 2007

Almanak 2008

Almanak SORPU er komið út. Viðskiptavinir geta fengið almanakið sér að kostnaðarlausu á öllum endurvinnslustöðvum SORPU, í Góða hirðinum og á vigt móttökustöðvar svo lengi sem birgðir endast. Almanakið inniheldur ýmsar gagnlegar upplýsingar um flokkun úrgangs og endurnýtingu. Eins og undanfarin ár er það sent í alla skóla og leikskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Nemendur í Vinnuskóla Reykjavíkur myndskreyttu almanak SORPU að þessu sinni. Verkin eru afrakstur samstarfsverkefnis SORPU og Vinnuskóla Reykjavíkur síðastliðið sumar en það bar heitið Sköpun úr rusli. Tilgangur verkefnisins var að auka umhverfisvitund nemenda Vinnuskólans og fá ungmennin til að skoða rusl í nýju ljósi og sjá það sem hráefni í nýjar vörur eða listaverk. Markmiðið var einnig að virkja sköpunarkraft þeirra, enda er forsenda endurvinnslu góðar hugmyndir um hvernig megi nýta það rusl sem til fellur.

Til baka