28. nóvember 2001
Styrkur til Einstakra barna
Góði hirðirinn, nytjamarkaður SORPU og líknarfélaga styrkti í lok nóvember félagasamtökin Einstök börn að upphæð 500.000 kr. Það var Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Sorpu sem afhenti gjaldkera félagsins, Sigríði Kristínu Hrafnkelsdóttur styrkinn.
Einstök börn er stuðningsfélag barna með sjaldgæfa sjúkdóma og styður við bak foreldra þeirra og stuðlar að fræðslu um sjaldgæfa sjúkdóma. Allt starf í þágu félagsins er unnið í sjálfboðavinnu en sala korta, félagsgjöld og peningagjafir fjármagna rekstur þess. Þetta er í þriðja sinn sem Góði hirðirinn veitir styrk af þessu tagi en árið 1999 hlaut Þjónustusetrið styrk og árið 2000 var það Daufblindrafélagið. Húsbúnaður, sem skilað er í sérstakan nytjagám á endurvinnslustöðvum SORPU er seldur í Góða hirðinum og rennur hagnaður sölunnar til líknarmála.












