Góði hirðirinn-aðalsíða
(22:20 7/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: S 7,2 m/s
Hitastig: 2,87 °C

14. desember 2007

Gamlir hlutir sem enn hafa óskert notagildi gera Góða hirðinum kleift að styrkja fjögur góð málefni í ár

Formenn og forsvarsmenn þeirra aðila sem hlutu styrk að þessu sinni. Frá vinstri: Berta Kristinsdóttir, Ína Valsdóttir, Oktavía Guðmundsdóttir og Hanna Björnsdóttir.

Föstudaginn 14. desember veitti Góði hirðirinn, nytjamarkaðar SORPU og líknarfélaga, styrk til fjögurra aðila og var lagt upp með að styrkja fólk til sjálfshjálpar. Að þessu sinni var heildarupphæðin 7 milljónir króna og skiptist hún á eftirtalda aðila: Átak, Systkinasmiðjan, Félag einstæðra foreldra vegna starfsmenntasjóðs og Bandalag kvenna í Reykjavík vegna starfsmenntasjóðs. Styrkveitingin fór fram í verslun Góða hirðisins að Fellsmúla 28 að viðstöddum aðstandendum félaganna og starfsmönnum SORPU og Góða hirðisins.


Markmið Góða hirðisins er að stuðla að endurnotkun, minnka sóun og láta gott af sér leiða, því ágóði af sölu í Góða hirðinum rennur til ýmissa góðgerðarmála. Gott samstarfs starfsmanna endurvinnslustöðva og Góða hirðisins við viðskiptavini okkar, sem bæði gefa notaða húsmuni til Góða hirðisins og versla í versluninni, gerir það að verkum að á hverju ári er hægt að styrkja góð málefni.

Á endurvinnslustöðvum SORPU eru sérstakir nytjagámar þar sem fólk getur losað sig við gamla hluti sem enn hafa óskert notagildi. Þannig má forða hlutum með reynslu og sögu, frá endanlegri förgun og finna þeim nýtt hlutverk í nýju umhverfi hjá nýjum eigendum. Þessir hlutir fara svo í sölu hjá Góða hirðinum og stefnir í að árið 2007 fari rúmlega 800 tonn af munum í endurnotkun með þessum hætti.

Í Góða hirðinum má finna allt milli himins og jarðar. T.d. sófa, stóla, borð, skápa, þvottavélar, ísskápa og ýmis önnur raftæki. Einnig eru þar smærri hlutir á boðstólnum eins og bækur, plötur, leikföng, leirtau og ýmsir skrautmunir. Góði hirðirinn er staðsettur að Fellsmúla 28 og er opinn frá kl. 12.00 - 18.00 alla virka daga.    

Nánar um styrkþega 2007.

Til baka