28. október 2002
Frá og með 1. nóvember verður laugardagsopnun móttökustöðvar SORPU í Gufunesi eingöngu ætluð aðilum með aðgangskort að vigt.
Laugardagsopnun móttökustöðvar SORPU í Gufunesi
Frá og með 1. nóvember verður laugardagsopnun móttökustöðvar SORPU í Gufunesi eingöngu ætluð aðilum með aðgangskort að vigt.
Reynslan hefur sýnt það að viðskiptavinir SORPU sem nýta sér þjónustu í móttöku- og flokkunarstöðinni á laugardögum eru að stærstum hluta aðilar með aðgangskort að vigt. Aðilum sem telja sig þurfa á þessari þjónustu að halda á laugardögum er bent á að sækja um aðgangskort á skrifstofu SORPU í Gufunesi, hafi þeir ekki slík kort nú þegar. Þessi aðgerð er liður í hagræðingu innan fyrirtækisins.












