11. nóvember 2002
Frá árinu 1995 hefur SORPA sent hátt í 35.000 tonn af dagblaða- og tímaritapappír til IL Recycling í Svíþjóð. Það fyrirtæki hefur síðan séð um að koma pappírnum áfram til fyrirtækisins Edet sem er einnig í Svíþjóð. Þeirra helsta framleiðsluvara er klósettpappír en einnig framleiða þeir t.d. eldhúsrúllur. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu nýtast 35.000 tonn af dagblaða- og tímaritapappír í framleiðslu á um 150 milljón klósettrúllum. Dagblaðapappírinn sem höfuðborgarbúar hafa skilað í grenndargáma og á endurvinnslustöðvar á þessu 7 ára tímabili hafa því komið að góðum notum við framleiðslu á þessari vöru.
150.000.000 klósettrúllur !

SORPA hefur frá upphafi (1991) safnað dagblöðum og komið til endurvinnslu erlendis. Árið 1995 má segja að hafi orðið tímamót í söfnun á þessum flokki með tilkomu grenndargámanna sem staðsettir eru víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Frá 1991 - 1995 voru pappi og dagblöð/tímarit skilgreind sem einn flokkur og því eru tölur frá þeim tíma ekki sambærilegar við tölur frá 1995 og síðar og af þeim sökum ekki teknar með í þessum útreikningi.